Í þessari grein ætla ég að fjalla um hvernig hægt er að fá mat fyrir village-ið… Ef þú ert með nóg af skalffolds (þessum litlu byggingarkössum man ekki hvað þeir hétu :P) getur þú gert akur fyrir 5 byggingakassa minnir mig. Best er að setja marga akra sama í hrúgu (eða stilla þeim fallega upp rétt hjá bænum). Svo eru nokkrir bæjarbúar settir í það “skemmtilega” starf að safna korni og fara með það í village store.
Gott er að vökva akrana til að uppskeran gangi hraðar (gott að kenna dýrinu að nota rain galdurinn).
Svo eru það dýrinn sem eru um allt. Ljón, Kindur, Beljur , Hestar úlfar og fleiri dýr sem hægt er að taka upp og einfaldlega henda í village store… (góð æfing til að læra að henda hlutum, færð smá belief fyrir að henda dýrunum og náttúrulega smá mat.
Svo er hægt að nota food galdurinn. Einnig er til önnur leið sem er að finna fiskitorfu og setja fólk í fiski starf eða setja það á ströndina þar sem fiskurinn er. Alla þesa 4 hluti getur dýrið lært, tekið mat af ökrum, náð í fisk út á sjó og hent dýrum í village store og notað food galdurinn. Ef dýrið þitt er mjög gáfað er gott að kenna því að ná sér sjálft í mat semsagt að kenna því að fara út á akrana eða fiskitorfurnar og næla sér í smá góðgæti.
Semper fidelis