Ég (eins og kannski margir er með) er með 2-4 saves í gangi og þar er ég með mörg dýr eins og apan sem ég hef skrifað um og líka tígur sem er snillingur…(ég er reyndar í borði 2 með honum). Einn dag lærði hann að dansa (var mjög oft að horfa á fólkið í bænum ganga í krinum artifacts). Hann sankaði að sér fólki úr bænum (eitthvað um 10-20 manns) og sagði því að fara í 3 raðir. Fólkið stillti sér upp og þá fór tígurinn að dansa breik dans (veit ekki hvernig það er skrifað :P). Hann dansaði langa lengi og með allt fólkið með sér fólkið dansaði valsa og hann breikaði á fullu. En svo minnir mig að hann hafi slasað einhver með því að rekast á hann þegar hann var í trillum dansi :D

Það góða er þegar dýrið fer að dansa og fær fólk til að horfa á sig er að maður fær slatta belief…

p.s. fyrir þá sem vita ekki hvernig maður á að kenna dýrinu að dansa þá á maður bara að taka stein og setja hann inn í þorpið (verður að snerta hann) eftir smá tíma fer fólkið að dansa kringum hann og hann byrjar að lýsa (og verður að artifact) þá er um að gera að leash-a dýrið við steinninn og ef hann er klár fylgist hann með fólkinu dansa.. :D

LIFI BLACK&WHITE
Semper fidelis