Jæja, ég er nú ekki mikill BW spilari, en mér finnst þetta nátulega snilldar leikur. Svo komst ég í þriðja land og lenti í þvílíka brasinu, það byrjaði með því að það kom þrumuveður sem einfaldlega miðaði á fólkið mitt, eftir þrumuveðrið þá átti ég hvorki meira né minna en tvær konur, þannig að ég var ekki langt frá útrýmingu. Ég byrjaði því eiginlega mannaeldi. Á endanum eftir svona 3-4 tíma þá var ég kominn upp í 60 manns. Ókei þá var ég búinn að byggja upp þorpið mitt aðeins og farinn að hugsa um að ná þorpi. Svo náði ég þorpinu eftir smá hark. En þá náttulega kveikti Lethys í helling að köllum, sem allir fóru inn í þorpið mitt. En með heppni tókst mér að gera nógu mörg water miracles til að slökkva í þeim áður þeir komust alveg inn í þorpið. Eftir það fór ég aðeins að skoða. Sá ég þá Lethys vinstra megin við þorpið mitt út á skaga, FROSINN. ég fór að skoða og sá þá að hann hafi misst öll sín þorp og átti ekkert nema tiny temple, ekkert smá skrítið. Ég veit ekkert akkuru hann missti öll þorpin og bara furðulegt sko. Svo þegar ég náði næsta þorpi þá komu þessir úlfar, og þá missti ég hel*** þorpið. Svo núna þá á Lethys eitt þorp inn í miðju landi og hann er nokkurn veginn að drepast, síðan minnkaði creaturið mitt líka um einhver tuttugu prósent. Þannig að ég er bara ráðalaus og er reyndar bara ánægður með þetta.

Kveðja Takami Bantosson
Ég er ekki til í alvörunni.