Jæja þar sem að ég er ekki mjög góður í BW. Þá var ég afkáralega ánægður þegar ég komst í 3. land. Ók ég var þá bara að dunda mér í þriðja landi og svona. Reyndi að byggja mér upp þorp, en þá kom þrumuveður og ég átti níu manns eftir, þar af tvær konur. Þannig að ég byrjaði eldi, ef svo má segja. Þannig að eftir þrjá fjóra klukkutíma þá var ég kominn upp í 60 manna þorp og ákvað þá að reyna að fara taka þorp frá Lethys. Svo eftir smá hark þá náði ég fyrsta þorpinu. En þá komu kallar sem Lethys var bún að kveikja, en mér tókst tiltölulega auðveldlega að slökkva í þeim áður en þeir komust í þorpið mitt. Ókei, nú var ég í ágætum málum. En þá sá ég soldið argaralega skrýtið. Lethys var þarna við hliðina á mér FROSINN. Ég fór ´náttulega að skoða mig um og skoða þorpin og sá þá að hann átti ekki eitt einasa þorp. Hann var bara dauður. Hann hafði smá influence í kringum Templeið sitt en það var allt. Svo er ég náði næsta þorpi. Þá kom þessi frosni maður og henti í mig úlfum og tók helv**** þorpið mitt. Ég var bún að reyna henda þeim ekkaðburt en þeir voru bara allt of margir. Svo þegar ég nennti ekki meiru þann daginn, þá átti Lethys eitt þorp einhverstaðar langt frá temple-inu og ég átti tvö. Ég veit ekkert afhverju hann missti ökll þorpin en það var alla vega mjög skritið.

Kveðja Takami Bantosson
Ég er ekki til í alvörunni.