Það hefur ekki verið send inn grein í lengri tíma
þannig að é ætla að reyna.

Ef fólk er mikið í Black & White núna ætti það að vita
að Creature isles, addon fyrir snildina er að fara að
koma út. Í þessari snilld getur maður eignast
son/dóttur(Ekki viss(Held son)) og ættleit lítinn
kjúkling í fjölkilduna. Maður á ekkert að geta stjórnað
þessum litlu kvikindum en á dýrið þitt að kenna þeim
eitt og óháð. En leikurinn er helst um það að fá að
leika sér smá með eina kvenkyns dýrið sem vitað er
um.

Til að geta gamnað sér með kvenkyns dýrinu þarf maður
fyrst að fá inngöngu í “The Brotherhood” minnir mig
að það heiti. Og til að geta fengið inngöngu í það þarf
dýrið manns að keppa við önnur dýr á The creature
island í endalaust af þautum. Ef maður vinnur alla hina
þá kemst maður inn. En það á ekki að vera létt þar sem
að yfir-dýrið í The Brotherhood er seinasti keppandinn.
Svo á maður líka að geta leikið sér við að gera
þrautirnar aftur.

Hinn helmingur add-onsins myndi vera nýu kvikindin og
enhanced AI. Þeir hjá Lion head studios gerðu mikið í
því að endurbæta AI í leiknum til að dýrið þitt geti
kennt kvikindunum. Ein af þeim þrautum sem maður er
sendur í gegnum neiðir mann til að sína að maður geti
verið foreldri. Til að gera það ættleiðir maður lítinn
kjúklingslíkann hlut, nefndann Tyke. Hann á maður að
ala upp meðann maður er að gera þrautirnar. Svo ef
maður vinnur keppnina á maður að geta eignast
son/dóttur(Ekki viss). Það á virka alveg eins og Tyke
hinn litli. Geta kvikindin þín tvö stækkað og lært
hluti alveg eins og þú en þú mátt ekki koma nærri því á
neinn hátt sem spilari. Og svo áttu að geta tekið öll
þessi ósköp með þér í singleplayer á endanum.

Þetta verður náturulega mesta snilld enda gert af
snillingum. Átti hann upprunalega að koma út 14.des en
var því frestað til 16.jan 2002. Er það sind en ættum
við að fá betri vöru í staðinn. Vonandi nutuð þið þess
að lesa þetta. Ég því miður man ekki hvaðan ég fékk
heimildirnar, ég skrifaði þetta eftir minni. Ég tel
líklegast að ég hafi fundið þetta á www.gamespy.com,
www.bwgame.com, www.bwcenter.com/ og fleiri þannig
stöðum. Dagsetningar fékk ég á www.amazon.com.
______________________________