Fable evil guide Fable evil guide.

Jæja, sá að það þarf nauðsynlega greinar hérna. Svo ég ákvað að fjalla um það hvernig á að vera vondur í Fable. Það eru margar aðferðir til að verða vondur í Fable. Besta aðferðin er líklega að framkvæma hluti sem þér finnst almennt rangt að gera. T.d. þjófnaður eða skemmdarverk.

Hvert sinn sem þú stelur hlut þá færðu 5 evil stig sem er í sjálfu sér ekki mikið en safnast þó upp. Ef þú vilt græða og samtímis safna evil stigum þá er best að stunda þjófnað þar sem skemmdarverk kosta þig sektir. En þá er best að stela án þess að fólk sjái þig, þá er gott að hafa eitthvað í “Guile” sem leyfir þér að hreyfa þig um í stealth. Þegar þú ert með mikið í “Guile” getur þú meira segja stolið hlutum sem búðareigendur setja upp (Ath. að stela þá þegar þeir eru ekki að horfa).

Önnur aðferð til að fá Evil og græða er að ræna fólk. Þú ættir að fara á svæði sem mikið af farasölumönnum (Merchant) eru að ferðast. Þú bara drepur þá og tekur hlutina sem þeir missa. Þessi aðferð er ekki endilega mjög fé væn þar sem þeir missa ekki mikið en þú græðir þó Evil stig (Og oft er miklu skemmtilegra að drepa fólk ;) ).

En algengustu illu verkinn eru tengd questum þá getur þú tekið þátt í að ræna og/eða drepa fólk með ræningjum. Oft koma siðferðislegar atriði í leiknum eins og “ætti hjálpa þessum” svo ef þú ákveður t.d. að skilja einhvern særðan eftir til að deyja þá færðu evil stig.

Útlitið er líka mjög áhrifa mikið. Til að auka illsku manns þá verður þú að klæðast fötum í samræmi. Dökkur fatnaður og brynjur sem eru dökklitaðar valda oft ugg hjá fólki. Einnig hafa húðflúr mjög mikil áhrif. Húðflúr tengd ýmsum glæpagengjum eru oft ógnvekjandi líka húðflúr sem tákna ýmsa hættulega hluti. Hárgreiðslur og skegg skipta máli, gott er að hafa mjög framandi hárgreiðslur og skegg þar sem það hræðir fólkið.

Ég mæli líka með að þú kaupir þér viðeigandi Viðurnefni eins og t.d. “Deathbringer” því það eykur hræðslu almennings.

Ég ákvað að geyma mannfórnir til síðast. Því það er mjög góð aðferð til að fá evil stig. Það er eitt illt hof í Fable og það er Temple of Skrom, þar getur þú látið fylgjendur hofsins framkvæma mannfórnir. Það felst í því að þú labbar upp að saklausum manneskjum og gefur þeim skipun um að elta þig (Follow command) síðan ferðu að hofinu og talar við einn af prestunum þar. Hann spyr þig hvort þú vilt fórna einum af fylgi mönnum þínum og þú svara því bara játandi. Þá fer fram fórn og þú færð evil stig en betra er að fórna meira mikilvægari persónum heldur en bara einhverju saklausu fólki út á götu. En eitt vandamál gæti komið upp þegar þú ætlar að fá einhvern til að elta þig en það er að þú sért kannski of ógnvekjandi. Mjög góð aðferð að fara í sakleysislegri fatnað og kannski breyta um hárgreiðslu. En besta aðferðin að mínu mati er að fara í “Guard” búning og þá er fólk miklu viljugara að fylgja þér.

En þetta er allavega mitt Guide að því að vera illur.

Ath. Fable er leikur frá sömu framleiðundum og framleiða Black and White.