B&W offical patch, map addon, o.fl komið út! B&W offical patch
Loksins! B&W Official patch er kominn út! EA hefur gert smá breytingar á honum en hann er mjög svipaður og BETA patchinn. Allar upplýsingar um patchinn er hægt að finna hérna á huga, í grein sem heitir B&W BETA patch detailes. Patchinn er 9.6Mb á stærð og hægt er að downloda honum á bwgame.com og fileplanet.com.

B&W Map addon
Lionhead hefur gefið út 4 ný borð sem hægt er að spila í multiplayer. Það þarf ekki að downloada þeim heldur er núna hægt að velja þau í undir maps ef þú ferð í create game. Aðeins þeir sem hafa sama patch geta spilað við hvorn annan og flestir eru með offical patchinn þannig að ég mæli með því að þú downlodir honum ef þú átt B&W

www.bwtourneys.com
Þetta er ný síða þar sem það er hægt að fara í tournament online game í B&W. Þú þarft að skrá þig (sign up) en það er þess virði. Þetta segja þeir:
“This site is dedicated to all Black & White fans and will be used to post multiple tournaments where you can put your skills against others.” Það verða vegleg verðlaun í boði fyrir vinningshafa þannig að prófiði að keppa. Það er þess virði!

MP3 music addon
Ég er ekki alveg með það á hreinu hvað þetta er en það á víst að spila eitthvað lag fyrir kvikindið þitt og gera eitthvað á meðan og þá man það eftir því þegar lagið er spilað aftur (Dæmi: Ef að þú spilar góð mamma og berð hann á meðan líður honum illa í hvert sinn sem þú spilar góða mamma aftur!) Annars veit ég ekki neitt um þetta þannig að kíkið bara á bwgame.com og downlodið þessu!