Dear Diary Ætla að skrifa smá sögu, svona óbeint framhald af þeirri fyrri :P. Anyhoo, guðinn er núna kominn á eyju numeros tvö, og skulum sjá hvað gerist…


Dagur 1:
Kæra dagbók. Nýbúinn að flytja, obboslegt vesen að pakka, ennþá verra að taka upp úr kössunum!! Var í smá vandræðum með húsasmíðar, en hitti rosa fínan náunga sem hjálpaði mér rosalega mikið! Er líka nokkuð sætur…grrr.

Dagur 2:
Hæ hæ hæ hæ hæ!!! M. fínn dagur í dag, fólkið ánægt og við búin að byggja á fullu! Mjöög lekker bær, húsin svona skemmtilega bleik og sæt. Khazar (þessi flotti síðan gær) kom aftur og hjálpaði mér, var m. duglegur við að kenna mér á ný kraftaverk, t.d. eldbolta! Verst bara hvað þeir eru rauðir, passa svoo ekki við fötin mín, svo vilja þeir líka alltaf kveikja í hárlakkinu mínu, hundleiðist þeir. Samt m. gaman þegar Khazar sýndi mér á þá, mucho macho!! Flúffi (apinn minn) var SVO sætur í dag, gekk um og klappaði kindum, svo sætur með litla borðann sinn í hárinu ^ ^

Dagur 3:
Hellúúú. Lenti í alveg svakalegu! Kom einhver þvílík frekja og var með geeðveika stæla við mig, einhver Leddi eða eitthvað álíka furðulegt, var með rosa kjaft og geðveikt leiðinlegur :’(. Khazar kom samt og huggaði mig, m. næs og kósý.

Dagur 4:
Gvöööð, fór að versla í dag, og fann þessa ÆÐISLEGU indíánabæi!! Og þeir voru á útsölu!!! Skellti mér á þá, og finnst þeir svo dúllulegir! Gæti ekki verið ánægðari! Eða jú, ef ég gæti einhvern veginn lokkað Khazar uppí rú…vúps, ég sagði ekki neitt <_< >_>

Dagur 5:
Leddi kom aftur, og var svo leiðinlegur :’(. Var geðveikt pissed yfir þessum bæjum sem ég fékk. Vildi greinilega fá þá sjálfur. Well, tough luck, sistah! Verður að vera sneggri ef þú vilt berjast við drottningu útsölunnar! Allavega, hitti Khazar í dag, alveg geðveikt, og tók eftir einu! Hann er með þvílíkt stóra fætur!! You know what that means….
Hann á greinilega mjög stóra skó! Ahahahaha! Plataði ykkur þarna, ekki satt?

Dagur 6:
Neeeeeei!! Khazar er farinn!!! Keypti mér annan bæ, og þá kom allt í einu einhver Nemmi, rústaði bænum hans Khazars og sprengdi hofið hans í tætlur! :’( M. sorglegt. Ég verð þá bara að sætta mig við pool boy-inn minn, Rrrrramon!
M. sexy! Er alvarlega að íhuga að rústa þessum Ledda, hann er bara svo böggandi!!

Dagur 7:
Totally rústaði Ledda í dag! Kenndi honum að messa ekki með Sigtrygg! Flúffi faldi sig reyndar bakvið stein allan tímann…en hann er samt svo sætur! ^ ^
Fór með eldbolta og kastaði þeim í bæina hans, og svo líka steinum!! En þá kom hið skelfilega fyrir! Ég. Braut. Nögl. ! ! !
Það hafði aldrei áður heyrst eins hátt óp í veröldinni. Ég flaug eins hratt og ég gat aftur heim, pússaði, slípaði og henti naglalakki á þangað til að nöglin leit venjulega út aftur. Fjúff.

Dagur 8:
Tók síðustu tvo bæina í dag. Helv. hann Leddi tók Flúffa í staðinn! Einhvern veginn sjarmaði hann (hann hefur dálítinn sjarma… m. djúpa og sexy rödd) Flúffa, og plataði hann með sér ofan í flutningsiðu með sér &#61516;. En ég fann aðra svona iðu í hofinu hans Ledda, og er rétt ófarinn! Þarf bara að ná í alla skóna mína…


Er ég alveg búinn að missa vitið…?:P
Jæja, ef ykkur líkar þá er ég með ákveðnar hugmyndir fyrir hin löndin líka…>D
Kveðja,
Sigtryggu