Ég hef átt leikinn síðan hann kom út 6. apríl, og var kominn í 4 borð eftir 4-6 daga. Mér skilst að það séu aðeins 5 borð, svo að ég spyr: Er leikurinn of stuttur?

Nema RedMercury (starfsmaður Lionhead, er oft á #lionhead rásinni) hafi verið að bulla, þá er þetta stutt campaign fáránlegt fyrir leik sem hefur verið í framleiðslu í þrjú ár!

Svona í lokin vil ég minna fólk á að ekki fara í borð 5 fyrr en patch er komið út. Fólk hefur lent í því að dýrið, sem er minnkað í byrjun borðsins, stækkar ekkert aftur, og vesalings fólkið situr uppi með dýr á stærð við hest sem neitar að stækka. Ég hef eytt mínum tíma í Multiplayer bíðandi eftir því, og vonandi kemur eitthvað