Var í Black&White, 100% góður og var að dúlla mér við að stækka bæina mína í borði 2. Influencið fór langt út fyrir hofið hans Lethysar (ég átti MIKIÐ af wonderum :P) og allt var í fína lagi, alls staðar nóg af mat og þvílíku. En svo skrapp ég aðeins upp, ætlaði að fá mér samloku (já, það er satt, ég fer endrum og sinnum burt frá tölvunni, en aldrei mjög lengi :P) en tafðist eitthvað (alltaf einhverjar skemmtilegar auglýsingar í sjónvarpinu) og kom ekki niður aftur fyrr en eftir hálftíma.

And lo and behold!, allt var farið til fjandans. Dýrið hans Lethysar var búið að nota Storm Extreme á indíána bæinn minn (þriðja bæinn þar sem allir verða veikir) og búinn að drepa marga þar. Svo vantaði mat alls staðar, sérstaklega hjá hofinu þar sem fólk var að tilbiðja mig. Þar var meira en helmingur af fólkinu dáið og þeir sem lifðu voru ekki í góðu standi. Og á þessum tíma hafði ég lækkað um 8 í Alignment!! (úr 1 niður í 0,92). Synd og skömm.

Ég grét og grét, reyndi að jafna mig á þessu og ná tökum aftur á leiknum. Fyrsta sem ég gerði var að lækna tilbiðjendurna og gefa þeim mat, svo tók ég eldinguna mína (sem var búin að bætast ótrúlega útaf öllum indíána Wonderunum mínum) og grillaði úlfinn hans Lethysar. Svo gaf ég öllum mat og læknaði þá, og allir lifðu hamingjusamir að eilífu (fyrir utan úlfinn hans Lethysar, hann fékk alltaf eldingu í rassgatið á mínútu fresti >D).

Kveðja, the Über-God Sigtryggur.