Ég man ekki eftir því að þetta hafi komið inn áður svo að ég ætla að senda þetta inn núna;).

Það er nú dálítið síðan að þetta kom í ljós þannig að sumir vita þetta kannski en um daginn var kosið um hvaða 2 dýr ættu að vera í Black and White 2. Þá kom líka í ljós að það verða bara 5 dýr í leiknum til að velja úr:(. En allavega, í fyrstu þremur sætunum voru Ljónið, Apinn og Kúin sem mér finnst bara rosalega fínt. Svo fengum við að kjósa um seinni tvö dýrin og þau voru…. Tígurinn og Úlfurinn! Ég las einhversstaðar að það hefði verið mikil barátta á milli Kengúrunnar og Úlfsins en Úlfurinn náði að vinna í lokin. Þannig að í B&W 2 verða: Ljónið, Kúin, Úlfurinn, Apinn og Tígurinn:D.
Kveðja, Sigtryggur.