Ég held að dýrið mitt sé að breytast í táning. Þegar ég var að dúlla mér í 5 borði var ég orðinn hálf pirraður út í hitt dýrið, sem sagt, grilla það og allt það;). Svo var ég að reyna að sýna dýrinu mínu þetta (sýna því að það væri vont). Og það gekk svona þokkalega, mitt dýr skaut eldboltum á hitt dýrið.

En svo kom hin hryllilegi sannleikur í ljós. Ljónið mitt stalst burt til að hitta ljónið hans bakvið risastóran stein þar sem að þau “dúlluðu sér”. Mér þótti þetta hálf fyndið/sorglegt af því að ég þoli ekki ljónið hans EN af því að ég er svo góð manneskja þá leyfði ég þeim að skemmta sér. En það sem ég var að pæla í, hefur eitthvað svipað þessu komið fyrir ykkur?


Kveðja, Sigtryggur.