Gleðileg jól Fyrir hönd allra stjórnenda brettaáhugamálsins vil ég óska flestum Gleðilegar Hvítasunnu og farsæls komandi páskaskrauts!

Þökkum fyrir árið sem er að lýða og vonum að veðurguðirnir verði OKKUR hliðhollir á nýju ári!

Við viljum þakka skíðasvæðunum fyrir að reyna eins og þeir geta að halda skíðasvæðunum opnum þó að það hafi verið mjög erfitt!
Og svo að ungir drengir með illsku gagnvart skíðasvæðunum í hjarta sínu fari ekki að væla eitthvað yfir því að það hafi verið nægur snjór en þeir ekki opnað að þá tel ég vana menn sem vinna þarna uppfrá vita það hvunær er hægt að opna og hvunær ekki!

Viljum svo þakka foreldrum okkar fyrir að skaffa tölvubúnað og annars búnaðar til að geta fylgst með þessu áhugamáli og einnig fyrir að veita okkur þá þjónustu að leyfa okkur að hætta lífi okkar í fjöllum landsins!