Snjórinn er bestur og þá sérstaklega í sólskyni og logni. Í dag var mikið líf á Fjarðarheiði, ég og vinir mínir fórum á bretti í þessu líka frábæra veðri en komumst svo að því að við vorum ekki einir uppí fjalli heldur var þar allt morandi í vélsleðagaurum að æfa sig og leika sér. Ég tók nokkrar myndir og vonast til að geta sennt þær inn bráðlega.

P.s. Njótið lífsin, farið á bretti ;)