á þessari stundu er víst verið að leggja lokahönd á brettapark á snæfellsjökli. heyrst hefur af 3 metra háum palli með 19 metra flata, risa halfpipe og fullt af reilum. parkið er staðsett við lyftuna og ku vera nægur snjór.
einhverjar erlendar brettahetjur eru víst á svæðinu en kann ég ekki alveg þær að nefna. eiginlega er ég bara að endurvarpa orðinu af strætinu hér svo kannski er betra ef einhver virkilega veit eitthvað um dæmið að hann tjái sig hér, og nú…
annars ætla ég að vera þarna um helgina og býst nú við slatta af fólki.
sn. hún