Jæja. Ég er frekar nýbyrjuð að skeita og á bara dótabúðahjólabretti sem ég skemmdi svo ég á þannig séð ekki neitt. Núna ætla ég að fá mér nýtt en ég veit ekki hvað er gott og hvað ekki. Með hverju mæliði? Og er hægt að fá sílíkon dekk (t.d. eins og gauranir í Lords Of Dogtown voru með/dekk úr sama efni og hlaupahjóladekk)?
Vinkona mín keypti sér nýtt bretti um daginn en hún getur ekki beygt á því og ég vil ekki lenda í því heldur, er það stillingaratriði eða mismunandi eftir brettum? Ef svo, hvernig bretti er gott í beygjur? Vona að einhver geti bent mér á eitthvað sniðugt. Og btw, helst ekki mikið dýrara en 20þús.