Jæja, nú er nýja árið að ganga í garð.
Og um leið og ég ætla að óska ykkur öllum gleðilegs nýs árs, ætla ég rétt að vona að snjórinn muni láta sjá sig meira en í fyrra.
Þetta er hætt að vera fyndið.
Við skulum öll leggjast á bæn til veðurguðanna um góðan snjó-vetur og vona að þeir bænheyri okkur í þetta sinn.
Annars þurfum við að fara að fórna fleiri hreinum meyjum.