Hér kemur saga dauðans fyrst það var einhver gaur að tala um slys…
Ég var í skíðaferðalagi með Miðbergi þegar ég var í 9.bekk… Allt í góðu maður keypti sér glænýtt Burton Bretti, bindingar og skó. Skellir sér í ferðina…
Svo komumst við til Akureyrar… Og förum að renna okkur og ég kann ekkert að bremsa né neitt… svo næsti dagur er allt ófært… Svo þriðji dagurinn er frekar stuttur því það er dagurinn sem við förum heim… Svo þegar 15 mín eru þangað til að við förum í rútuna þá skellum við okkur (5 strákar) upp í stólalyftuna og ætlum að fara kveðjuferðina!
Og ég fer, byrjuninn er helviti brött!, og STÓR pallur strax á eftir… og ÉG fer á 100! og næ hvorki að bremsa né stoppa og fer á pallinn og FRUMV! fer heljarstökk (backflip) lendi á hnakkanum… fæ hnéið í nefið og stúta á mér nefið… ég meiddi mig nu ekkert mikið hélt að þetta væri bara smá blóðnasir… lá aðeins í snjónum og strákarnir öskra! ÁSTÞÓR ertu dauður?! og ég segi neinei stend upp og þeir horfa bara OMG!!! og ég byrja að rölta niður… nenni því svo ekki svo ég fer að renna mér aftur og dett eins og venjulega… Fer upp í skála… þar horfa allir á nefið á mér og hlæja… ég fer niður á klósettið og spring úr hlátri þegar ég sé nefið á mér alveg kengbogið og þá er ég settur í Legubíl og niður á slysó og þar segir læknirinn ég get ekkert gert nuna við verðum að bíða eftir að bólgan fer… Og svo hringja þau í foreldrana frá sjúkrahúsinu… en þau eru ekki heima… en þegar þau koma heim og kíkja á númerabirtinn sjá þau að það er eitthvað númer frá Akureyri á honum hringja… og það Svara Spítalinn á Akureyri (eða eitthvað) og pabbi verður smá óroglegur og spyr já það var hringt í mig gæti það verið útaf Ástþóri? og hun segir … hmm já hinkraðu smá ég ætla að ná í lækni og pabbi alveg kúkar í sig heldur að ég sé dauður haha!
Þetta er slysasaga dauðans! :)