Hæææææ þið öll!
Ég væri þokkalega til í að heyra frá fólki sem fór upp í Skálafell í dag…….þetta var víst fyrsti opnunardagurinn þeirra og held ég að aldrei hafi verið opnað svona snemma. Við brettafólk ættum að vera ansi ánægð með hvað snjórinn lætur snemma sjá sig,þar sem hann stóð nú ekki vel við bakið á okkur síðasta vetur.

Magnað brettabíó var haldið 27 nóv fyrir þá sem misstuð af því, þá misstuð þið af ansi miklu…..myndin True life er alveg mögnuð og mæli ég með að fólk kaupi sér eintak…..frábær mynd og mögnuð stökk!!!