Langt síðan ég hef skeitað en ætla að reyna að vera duglegur í sumar… og þá er bara spurningin - hver eru bestu merkin í dag? Hvaða skó ætti maður að fá sér o.s.fr. Á Circa skó sem ég er búinn að nota í örfá skipti, þeir eru samt allir rifnir :/ Keypti alveg geggjaða skó í Hlekknum '96 minnir mig, Simple! Man hvað þeir voru rosalega góðir. Er enginn að skeita í Simple skóm í dag?

btw. keypti plötu í Smash sem er með holunum skökkum í. Þannig að öxullinn að framan beinist frekar mikið til hægri. Var ekkert að hugsa út í þetta fyrst en sá það þegar ég var búinn að skeita aðeins á henni og fór að skoða þetta betur. Er eitthvað hægt að fara og skipta þessu öllu útúrrispuðu?


inne