IPP hvað! þessir gaurar eru nú allveg.
Á föstudaginn fór ég vestur á snæfellsnesið mjög spenntur að vera fara á IPP, síðan á laugardeginum vakna ég snemma og fer að hafa mig til að fara uppí fjall og fer síðan og labba upp eftir og upp þar sem park-ið átti að vera.
Þá kemur í ljós að það var ekkert helvítis park! Við félagarnir urðum náttúrulega æva reiðir og fórum í félagsheimilið í Arnarstapa og tala við gæjana sem sjá um þetta og þá kom bara í ljós að þeir hafi ákveðið að fresta þessu um viku án þess að láta vita hvorki á síðunni sinni né láta formenn brettafélags Íslands vita!
Frábært hjá þeim bara.
Reynir Json.