Jæja núna er fyrsta helgin (21 maí) sem IPP er opið. Ég hef heyrt að það sé búið að búa til einn stóran pall sem er 16-18 metrar, síðan annar minni sem er um 10 m og eflaust einn lítill. Síðan er corner pallur og fullt af nýjum railum sem þeir hafa verið að smíða, það getur verið að það séu fleiri pallar en ég hef ekki hugmynd um það. Síðan eru þeir að smíða mini-ramp og verða þeir með hann inn í stóru uppblásnu tjaldi.
Ég hvet alla til að mæta því að þetta er bara snilld hjá þeim, alla vega er ég að fara upp eftir í dag.