Jæja fólk, hvernig er svo stemmningin fyrir því að fara á bretti út á land í sumar?
Það verður auðvitað ferð með Týnda upp í kellingarfjöll, en svo er aldrei að vita nema að það verði einhverjar aðrar, s.s. á Snæfellsjökul. Svo er auðvitað sá möguleiki fyrir hendi að safnast saman í hóp og fara saman, en þeir sem hafa verið hérna inni nógu lengi vita að við ætluðum að gerð það í vetur en mistókst.
Ég sjálf stefni að því að fara í The Bitch mountains, en látið endilega í ykkur heyra ef þið fáið einhverjar hugmyndir.
Ásta