Þessi korkur er skrifaður að heilum hug, taka það fram ég ég meina allt sem stendur hér fyrir neðan


Með þessum korki vill ég biðja GÁP afsökunar á hegðun minni í þeirra garð, ég sagði hluti um þá sem ég hafði engan rétt á því að segja eða GÁP að fá sagt um sig, t.d. sagði ég að þeir væru með gallaðar vörur, ALLAR búðir geta fengið slæmar vörur og er GÁP engin undantekning ég lenti á slíkri vöru og varð þar af leiðandi sár og reiður út í búðina, og ég gerði svolítið sem ég fyrirlít mest, ég fór að alhæfa og sagði hluti sem ég óska núna að ég hafi aldrei sagt.

Sumir hlutir særa og það sem ég sagði um GÁP hefur sært þá á alla hugsanlega vegu, bæði tilfinningalega og viðskiptalega. En þegar brettið mitt klofnaði fór ég með brettið niður í GÁP og þeir létu mig fá þjónustu sem önnur fyrirtæki mega taka til fyrirmyndar, og nýtt Burton Custom í þokkabót á ótrúlegu verði.

Ég segi það af heilum hug og sannleika að þetta er besta bretti sem ég hef átt.
Ég mun einnig fara niður í GÁP og bið þá afsökunar sem fullorðinn maður, ég trúi því að allir eigi skilið að fá mistök sín fyrirgefin en engum skal fyrirgefa sömu mistökin tvisvar. Ég gerði mistök sem ég dauðsé eftir að hafa gert.

En þau eru búinn og gerð, og ég vona að GÁP reyni allvega að fyrirgefa mér þessi mistök.

Vill þakka ykkur hugurum fyrir að lesa þetta, og ef þið þekkið til GÁP, biðja ykkur um að benda þeim á þessa afsökunarbeðni.

Takk fyri