Vinur minn sá mynd af mér þar sem ég var niðri í bæ með vinum mínum og ég og besta vinkona mín vorum eitthvað að reyna okkur áfram á bretti (þá meina ég að við vorum að æfa okkur að renna okkur áfram án þess að detta :P)en ég meina… þegar þú byrjar þá byrjar þú á botninum… ekki satt? Svo var ég eitthvað að segja honum mig langaði geðveikt að læra á bretti. Þá fé ég spurningu frá honum,mjög ömó spurningu “hverjum af vinum þínum ertu hrifin af?” ég bara “ha…hvað meinarðu eila?” og hann bara horfir beint framan í mig og meinar þetta 100% “ég meina…þú ert stelpa. Fyrst þú vilt læra á bretti hlýtur það að vera til að reyna vera cool fyrir framan einvher strák!”

Afhverju á það að vera þannig? Mér finnst bara gaman að renna mér á bretti og langar að læra eitthvað meira…þarf ég endilega að vera reyna ganga í augun á einhverjum :S því ef svo er þá finnst mér þetta ekki rétta leiðin:S láta þann sem þú ert hrifin af sjá þig eins og spítukall á bretti og geta ekki neitt…