Okei… ég er stelpa … 15 ára…. hef verið á bretti síðustu einn-tvo vetur og hef haft óendanlega gaman af! En málið er að ég er ekkert sérstaklega góð. Hef alltaf verið að reyna að kenna mér sjálf og það er erfitt… Ég þekki engan sem er eitthvað góður á snjóbretti (eða jú nokkra sem eru ágætir en hafa ekkert getað kennt mér eða komið mér inní þetta)
Mig langar ekkert smá mikið að læra meira á brettið mitt og geta lært einhver trick eða eitthvað sniðugt ;) það væri snilld…. En mig vantar einhver til að koma mér inn í þetta, hjálpa mér, og kynna mig fyrir öðrum krökkum og helst nokkrum stelpum sem eru á bretti….
Ég veit þetta hljómar eins og einkamálaauglýsing en ég er að verða desperat því mig langar svo að verða betri á bretti!! :D

Hvað geri ég??? :-S <br><br><b>Tilvitnun:</b><br><hr><i>Það passar mann enginn betur en maður sjálfur</i><br><h