Um páskana verður Íslandsmeistaramótið í Boarder Cross á Snjóbrettum haldið á Ísafirði . ISA (Icelandic Snowboard Association) heldur mótið í samstarfi við Swatch-umboðið á Íslandi. Mótið fer fram föstudaginn n.k., 18. apríl, á heiðinni ofan við Tungudal á Ísafirði. Keppt verður í yngri flokki (16ára og yngri), karlaflokki (17ára og eldri) og svo kvennaflokki (blandaður aldur). Ekkert keppnisgjald er á mótinu.
“We are brothers from different mothers”