Ég get ekki mælt nógu sterklega með því að fólk fari á AK helgin
4-6 apríl. Framverðirnir eru búnir að smíða þvílíka flóru af railum
sem verða á mótinu að annað slíkt hefur ekki sést í háa herrans tíð. T.d núna rétt áðan var Rainbow- rail í smíðum sem lofar vægast sagt góðu. Snjór lítur út fyrir að vera ekkert vandamál þannig að allt stefnir í eftirminnilega helgi. Því legg ég til að allir, ungir sem aldnir leggi leið sína í sveitina og taka þátt í mestu snjóbretta(og almennrar)gleði ársins.
Rútuferðir verða frá RVK til AK og kostar skítnar 4500, inni í því er ferð framm og til baka og far uppí fjallið.

www.akextreme.com