Mótshaldarar AK-x voru í stuttri heimsókn til AK að kíkja á aðstæður og spjalla við yfirvöld. Niðurstaða ferðarinnar er sú að nægur snjór sé til staðar í Hlíðarfjalli til að halda alla liði helgarinnar og einnig til að halda Big Jump mótið í miðbænum. Undirbúningur stendur því sem hæst og er allt að smella. So have no fear AK-x is coming.