Nú þarf að fara að hita upp fyrir veturinn og fara að skoða aðeins myndböndin sem verða á boðstólnum komandi vetur. Frá MDP (Mack Dawg Productions) eru væntanleg tvö myndbönd að vana en Forum teamið sendir ekki frá sér sér myndband að þessu sinni eflaust vegna þeirrar ómældu vinnu sem þeir þurftu að leggja á sig við The Resistance sérstaklega og True Life.

Myndböndin nefnast Pulse annarsvegar og The Nixon Festival hinsvegar.
Pulse samanstendur af útvals-snjóbrettarennsli með þeim bestu við bestu aðstæðurnar og býður líklega upp á það sem maður vill í góðu snjóbrettamyndbandi. Það þarf varla að fara að telja upp þessa snillinga en þeir eru þarna nær allir.
The Nixon festival er, einsog nafnið gefur til kynna, upptökur frá jib keppni sem haldin var í 3 daga í Sierra Summit, Kaliforníu. Þar á maður eflaust eftir að sjá sjúk rail trick því öll hlíðin er troðin af járnun, bekkjum, handriðum sem maður hefur aldrei séð.

Standart Films gefur einnig út myndband sem nefnist Notice to appear en virðist ekki vera að koma með ellefustu útgáfnuna af Totally Board seríuni geysivinsælu (sb TB9, TB10 og fl.) Þrátt fyrir að nafnið sé annað lítur út fyrir að myndbandið samanstandi af svipuðum hlutum og TB myndirnar með sömu áherslum. Snillingum á brettum að gera flott trick einsog í flestum myndböndum en einnig er mikið freeride á rugluðum tindum um heim allan. Það er eitt það magnaðasta sem maður hefur fengið að sjá frá TB myndböndunum. Ótrúlegar myndir

Ath - Trailera af öllum þessum myndböndum er hægt að fá á www.snjobretti.is - Ath

Búið er að gefa þessi myndbönd út en þarmeð er ekkert víst hvar þau verða fáanleg í veturi eða jafnvel að þau komi yfirhöfuð. Það ætti samt sem áður ekki að vera mikið mál fyrir búðir einsog útilíf, nanoq, brim, smash, holuna og þær sem eftir lifa að panta nokkur eintök og selja, þetta selst alltaf þrátt fyrir að ég persónulega þurfi að nöldra aðeins í verðunum á MDP myndböndunum sérstaklega 4.200 kall !! eða eitthvað svoleiðis í fyrra.

Svo verður vonandi brettabíó nú í haust þar sem fólkið getur byrjað að hlakka til veturins fyrir alvöru!!..

over´n out

Boarde