ég hef svo mikla trú á ykkur fólk. nú langar mig að heyra eitthvað um Týnda hlekkinn. er viss um að einhver veit meir en ég um örlög hans.
okei ég veit að það er búið að selja hann og holu gaurarnir tóku við en hvað verður þá um holuna? og hvað verður um Týnda hlekks crewið? nú er engin elíta til að líta upp til!!!! hvað gera óharnaðir unglingar með lélega sjálfsmynd þá? spyr sú sem ekki veit ( en þarf nauðsynlega á svari að halda).
svo var einhver svona rúmör on da streetz um einhvers konar snjóbrettakvikmyndakvöld í laugarásbíói og átti m.a. að sýna The Resistance, forum vidjóið. einhver heyrt meir um það?
búin í bili, á ekkert hálfkveðið slúður eftir… endilega fyllið/bætið í eyðurnar.
stelpa hún.