portablo diablo er nýr brettaframleiðandi á Spáni sem er strax farinn að slá í gegn erlendis með nýja diablo brettinu sínu. Þetta reynist vera hjólbretti með bindingum og skóm. Þeir framleiða einnig samskonar snjóbretti sem vegur aðeins 500 gr. Þessi bretti eru búin til úr hörðu kertavaxi og renna þau þar af leiðandi mikið betur en önnur bretti en samt með sömu hæfileika og önnur bretti. Það er stefnt að því að koma því á íslenskan markað í janúar og mun nanoq hafa það á sérstöku tilboðsverði sem hljóðar upp á 50.000 kr. Glæsilegur árangur hjá þeim.