Bara svo að allir fá þetta á hreint, í eitt skipti fyrir öll, þá verður farið í hópferð á snjóbretti í vetur, og meira að segja þá verður líklegast farið á Snæfellsjökul, ok?! Snjórinn virðist bara að vera að taka sinn tíma í að drulla sér á jökulinn, en við verðum bara að sýna þolinmæði. Ég lofa að láta alla vita um leið og búið er að pússla saman einhverri ferð og með nægum fyrirvara líka.
Jæja skemmtið ykkur!