Vitið þið um einhvern sem stundar snowblades hér á landi???
Ef þið eigið vin/vinkonu sem er í þeim djúpa skít þá er hægt að senda hann/hana í meðferðabúðir í Suður Kóreu. Það jafnast ekkert á við þessar gömlu góðu kóreusku endurhæfingar… frekari upplýsingar fást á slóðinni: www.realhamster.com
Ég hef alls ekkert á móti fólki á skíðum, ég meina það byrjuðu núi flestir þar ekki satt? En þegar ég mæti manneskju á snowblades þá bara sé ég svart! Þessi tegund lífvera hefur enga stjórn á einu né neinu og veltur um brekkurnar eins og hálshöggvin hæna og leggur líf annarra virðulegra brekkugezta í hættu! Hafiði séð World Cup Snowbladescompetition? Það er ekki einn snowbladari sem lendir stökk - snilldar sjónvarpsefni….!¨
Ég vil nú ekkert vera vond við þá sem eru á snowblades…ég vil bara benda á að það sé hægt að fá hjálp og þar af leiðandi mun heimur okkar verða betri staður….eða…?