Ég var að vinna upp á Vatnajökli (Skálafellsjökli, 40 km frá Höfn) í allt sumar hjá Jöklaferðum, og var þar af leiðandi á bretti í allt sumar. Það er fín aðstaða þarna upp frá. Flottur skáli, troðarar og sleðar. Endalausir möguleikar, að vísu engin lyfta. En ég bigði mitt eigið bretta park þarna í vetur og hafði afnot af einum troðaranum til þess. Ég er bara svona að kanna hvort einhverjir hefðu áhuga að fara í ferð þangað næsta sumar, í staðin fyrir kelló td. Það var nægur snjór og flott veður þarna í allt sumar alla vega enda Maí, Júní og fram í miðjan Júlí.
Bara að láta ykkur vita af þessum möguleika……….