Rétt upp hend, sem ætlar á snjóbretti í vetur!
Nei, nei, án gríns, þá finnst mér mjög gaman að fara í brettaferðalög og soleis, en finnst ykkur ekki orðið soldið einhæft að einu almennilegu ferðirnar séu með týnda hlekknum? Tímið er frábært lið en að fara alltaf í ferðir með sama fólkinu er ekki gaman til lengdar. Þess vegna finnst mér (og mamma sagði mér að segja alltaf það sem mér finnst) að við ættum að slá saman í ferð, það þarf alls ekki að vera erfitt, né dýrt, bara gaman. Auk þess þá þorir maður miklu meira þegar maður er í kringum fólk sem er á svipuðu reki og maður sjálfur, en ekki með einhverjum með 10 ára reynslu.