jæja fólk.
sit hérna og horfi út um gluggann á Esjuna; hún er pínku hvít á hausnum. lofar góðu, bara góðu. hef fyrir því vísindalegar sannanir að veturinn hér sunnan heiða verði góður og jafnvel um allt land. það er líka eins gott, annars mun ég gráta söltum tárum.
en hvað um það. ég væri ótrúlega til í smá svona upphitun fyrir veturinn. sitja í bíói og horfa á einhverja brjálæðinga gera sjúk trikk sem maður veltir svo fyrir sér hvort maður muni nokkurn tíma geta gert. týndi hlekkurinn var náttlega með svona í fyrra. spurning hvort það sé eitthvað líf á þeim stað í dag??? annars hljóta að vera einhverjir bransagaurar/gellur sem geta skipulagt svona. er kannski einhver að því á þessari stundu? nóg kemur út af nýjum myndböndum á þessum tíma. kannski væru þessir íslensku hjólabrettakvikmyndatökumenn til að sýna sinn afrasktur. eða bara eitthvað.

ég auglýsi hér með eftir einhverri svona uppákomu, eða upplýsingum um eitthvað eða bara smá svörum frá fólki úti í bæ. ég veit að það eru margir eru orðnir spenntir og fullir lackofpowderdepression. ég er það allavegana.
hvít hún