Ljósmyndasamkeppni 13. ágúst - 27. ágúst Jæja ég ætla að koma af stað smá ljósmyndasamkeppni, þannig að farið út með myndavélina og takið einhverjar flottar myndir og sendið hingað

Þið getið sent inn mydnir frá 13. ágúst til 27. ágúst þannig að þið hafið 2 vikur til að senda inn myndir. Ég er að fara til dk og Fjárhundur er í Brasilíu þannig að ég fæ ákveðinn aðila til að sjá um þetta áhugarmál á meðan. Kem svo ferskur heim þann 25. Ágúst og tjékka á myndunum sem verða vonandi sem flestar.

Skilirði:

*Þarf að tengjast bretti
*Stærð frá 640px sinnum 480px til 1024px sinnum 768px
*Reynið að hafa myndina ekki meira en 500kb
*Nafn myndar á að vera “brettakeppni_nafnmyndar”

Það sem koma skal fram í lýsingu:

*Hvað er að gerast á myndinni
*Hver er á myndinni
*Hver tók myndina
*Hvar myndin er tekin
*Hvort það er búið að vinna myndina eithvað

Munið ekki fara á google og finnið einhverja mynd þar, takið myndirnar sjálfir !

Kv. Birkir Örn