Blandíkassa Í fyrsta lagi vil ég segja að það olli mér miklum vonbrigðum hversu fáir sentu inn grein um sögu hjólabrettisins….. 0.

En ég fyrirgef ykkur þetta nú alveg, en þá var mér að detta í hug að í fyrsta lagi:

Setja svona í undirskriftina:

Bretti/öxlar: Burton Cruzer 154W/Blank plata
Bindingar/öxlar: Burton Freestyle/Thunder öxlar
Skór/Legur: Burton Tribute/(man bara ekki hvaða legur).
Þetta er bara hugmynd sko, en það væri gaman ef að fólk myndi gera þetta bara svona maður hafi einhverja hugmynd við hvern maður er að tala;)

Svo var ég að hugsa hvort það væri sniðugt ef að þið færuð að senda inn greinar, lang skemmtilegast að lesa greinar, og var hugmyndin sú að þið mynduð þá segja hjólabretta/snjóbretta sögu ykkar, s.s. Hvenar þið byrjuðuð á bretti segja frá einhverju atviki sem ykkur finnst minnistætt, fyrsta brotið(ef einhver) og fleirra!


Er þetta kannski ekkert sniðugt?