Það hefur vantað betri upplýsingar um ferðina á Snæfellsnes. Hún er sem sagt næstu helgi og hefur verið ákveðið að það verða ekki rútuferðir. Við mælum með því að sem flestir reyni að fylla bílana sína og gefa þeim far sem komast ekki á eigin bílum… Lyftukort kostar 1200 kall og 3000 kall ferðin með troðara upp á topp. Hvert tjald á tjaldstæði kostar 250 kall nóttin og svo 250 kall nóttin á hvern haus í hverju tjaldi. Allar spurningar varðandi ferðina er besta að nálgast hjá honum Nonna Extreeme (eða bara Nonna) en hann er með email john@baugur.is.