Þá er loksins komið að því að islenska brettamyndin Why Not verði frumsýnd í Reykjavík.

Brettabíó í Reykjavík

Hvenær: Laugardaginn 5. nóvember 2005 kl. 18:00

Hvar: Laugarásbíó, Reykjavík

Myndir:

- WHY NOT, nýjasta mynd Divine Krúsins frá Akureyri. Eiki, Gulli, Viktor, Halldór og vinir fara hreinlega á kostum í þessari eðal brettamynd sem var tekinn víðs vegar um Evrópu síðasta vetur (2004/2005). Eðal snjóbretta og skeit stunt í bland við nett fíflalæti.

- BLACKOUT frá Wildcats. Wildcats krúið saman stendur af gaurum eins og: Kale Stephens, Paavo Tikanen, Devun Walsh, Gaetan Chanut, Tadashi Fuse ofl. Hluti af þessu krúi kom til Íslands í rúmar tvær vikur til að taka upp. Eiki, Gulli og Viktor voru svo heppnir að fá að fljóta með. Þeir koma allir fyrir í Blackout og er að finna sér kafla um Ísland í henni. Pete Anderson sem klippir og leikstýrir þessari Wildcatas mynd var bara að klára að klippa hana fyrir 5 dögum og verður Blackout því heimsfrumsýnd á Íslandi sem er bara frábært. Ég var bara að klára að horfa á hana áðan og hún er vægast sagt flott, fyndin og geðveik eins og lang flestar Wildcats myndinar og hellingar af efni í henni frá Íslandi.

Um að gera að mæta tímanlega því það er takmarkað sætaframboð. Það er síðan aldrei að vita nema það verði bornar fram einhverjar léttar veitingar.

Það kostar litlar 500 kr. inn sem er ekki neitt miðað við gæði og innihald.

Sjáumst í bíó

Geiri

geiri@bigjump.is