Hádí

Nú stendur sko mikið til. Við erum að breyta og bæta bigjump.is. Það er ss verið að vinna í því að setja upp nýtt kick ass útlit. Þetta græjast allt saman núna vonandi fyrir 21 jan. Á meðan koma engar fréttir og svoleiðis inn á bigjump. Ég vona að það sé í lagi og trufli ekki neinn of mikið. Ég er samt að vonast til að ný síða verði klár í dag (19 jan), lofa samt engu.

Eins og alltaf með nýjar síðar mun það síðan taka einhvern tíma að græja nýju síðuna og gera hana eins perfect og við viljum. Allar ábendingar (geiri@bigjump.is) eru vel þegnar þegar nýja síðan er klár.

Með því að breyta og bæta síðuna erum við að vonast til að geta fært ykkur en betri gagnagrunn um allt brettatengt á Íslandi.

Á öðrum nótum:

Brettakvöld ISA í Skálafelli á föstudagskvöldið, byrjar um 19:00 og stendur til svona 23:00. Lyftunar verða sem sagt opnar lengur. Stefnum á það að henda einhverju skemmtilegu þarna upp og svoleiðis. Næ vonandi að auglýsa þetta betur á bigjump.is fyrr en síðar.

Brettabíó í Borgarbíó Akureyri næstkomandi Laugardag (22 jan) kl. 18:00. Ekki búinn að ákveða en hvaða myndir ég sýni, þær verða alla vega tvær. Reyni líka að auglýsa þetta á bigjump ef ég get fyrir helgi…………

Margt annað kemur svo í ljós inn á bigjump fyrr en síðar.

Þið hafið svo bara samband ef það er eitthvað ekki þegja ef þið hafið eitthvað að segja. Hvernig væri svo að fara að henda nýjum greinum hér inn. Örugglega fullt af brettmönnum sem koma hér inn sem vilja tjá sig eitthvað, tjáið ykkur.

Heilsssssssssaaaaaaa

Geiri

geiri@bigjump.is