Fyrst að við fáum ekki klippukubb, þá bý ég bara til klippukubb! Já, núna ætla ég að hýsa klippur og myndir fyrir hjólabrettabrettafólkið. Ég keypti lénið skeit.com, því að skate.com var upptekið, og skeit er svona íslenskara :D En öllum er velkomið að senda inn myndir og klippur, það eina sem þú þarft að gera er að skrá þig. Það eru komnar nokkrar innsentar klippur, og mun þeim fjölga. Ég hef nóg pláss og nóga bandvídd.

Svo er ég að vinna í umfjöllunarkerfi, og verður bráðlega hægt að senda inn spot check-a. Myndakerfið er alveg að koma upp og klippukerfið er komið upp.

En ef þú ætlar að senda klippu þarftu að uploada henni og senda upplýsingar um hana í skilaboðakerfinu á síðunni. Þó að þú fillir út upplýsingar þegar þú ert að uploada þeim, þá festast þær ekki með því ég er með stilt á flatfile upload. Hámarks stærð á video-i er 10 mb, ef þú villt endilega senda inn stærra-i, hafðu þá samband á andri@skeit.com. Ég er svo búinn að senda inn 10 klippur frá sjálfum mér.

Varðandi myndinar, þá er ég að vinna í upload kerfi fyrri þær. Þannig það verður aðeins að bíða.

Ekki hika við að kíkja www.skeit.com