Ég skellti mér á þessa góðu sýningu í gær í smárabíó og maður var bara sáttur við þá strákana. Þeir hafa tekið miklum framförum frá því að Óreiða kom út svo er ég ánægður með mætinguna hjá ykkur sæta fólkinu, hörkumæting, og greinileg áhugaaukning frá því síðast.

Varðandi myndina, þá var ég mjög ánægður, maður má ekki sleppa að sjá þessa glæsilegu mynd, vel klippt og leit vel út. Mér fannst þetta samt of mikið í railum og vantaði uppá fjölbreytnina, en það er gaman að sjá hvað þeir eru orðnir miklu betri í þessu og ég bíð spenntur eftir næstu mynd.

Ég mæli með að allir festi kaup á henni því þetta er skyldueign fyrir íslenska riderinn og að auki rennur ágóðinn til skólagöngu þeirra í svíþjóð í brettamenntaskólanum þar :D

Gangi þeim vel þar úti,
heyri í ykkur…
ViktorAlex