Skíðafólk hatar snjóbrettafólk og snjóbrettafólk hatar skíðafólk.. þetta kom fram á stjórnarfundi bláfjallasvæðisins að vísu ekki í þessum orðum en þetta var meiningin.. og þetta er líka rétt.. þeir þvælast fyrir hverjum öðrum og skíðafólk skemmir stökkpalla og endalaust er hægt að rífast út af þessu… en .. nú eru uppi hugmyndir um að gera sér svæði fyrir brettafólk á bláfjallasvæðinu þar sem skíðafólk fær ekki inngöngu er verið að tala um 2-3 lyftur til að byrja með og mun verða sérgjald fyrir þetta svæði.. ekki er alveg ljóst hvar þetta svæði mun vera en þó er verið að leyta að svæði á bláfjallasvæðinu stefnt er að því að opna þetta brettasvæði fyrir veturinn 2002 (ekki næsta vetur heldur næsta).