Sól sæla og púður!!!!! Bara svona að láta ykkur vita að í stafdalnum í dag var heiðskírt, glampandi sól og sikk púður. Bara að þetta gæti verið svona alla daga. En ég verð nú bara að seigja að þessi könnun um hversu oft maður væri búinn að fara á bretti í vetur, ég verð nú bara að vorkenna þeim sem samdi hana, það er að seigja ef hann er að tala um sjálfan sig. Ég meina, 5 sinnum eða oftar. maður fer ekki 5 sinum á bretti á einum vetri! Ég er búinn að vera á bretti á næstum því hverjum degi. Ég er allavega búinn að fara 30 sinnum, ég er ekki að ýkja. svona er að búa úti á landi hehehe….