Þetta bara gengur ekki lengur! Snjóbretta myndböndin mín orðin slitin og sömuleiðis blöðin. Ég er á góðri leið með það að sökva í góða þunglyndi, og ef það er einhver þarna úti sem getur reddað mér Lithiumi þá er hin sami vinsamlegast beðin að hringja í 1-800 where is da fucking snow. SKO ég hef verið góður strákur og ég á þetta ekki skilið, mér finnst eins og guðirnir séu að bregðast mér, eftri allar þær fórnir sem ég hef fært þeim. Ég bið ekki um mikið bara smá frost og snjókomu svona nóg til að endast fram í maí, en nei það er 1 feb og ekkert nema rigning og drulla. Og ofan á það kemst ég ekki út í vetur heldur, helv…. andsk…. djöf,,,,.,. Af hverju flutti ég frá Akureyri? það er búið að vera opið þar í 50 daga, en einhvera 3-4 hér fyrir sunnan. Þetta er nú meira helvítis (pardon my frennch) skerið sem við búum á. Ég er ekki alveg búinn, og ofan á alla þessa eymd og volæði bætist svo sú staðreynd að ég vinn við skíðasvæðin og það er engin snjór ergo við erum bara að dútlast eitthvað og engin yfirvinna = litlir sem engir penningar útborgað.
Af hverju er maður ekki löngu fluttur út, af hverju er maður ekki löngu búinn að framkvæma í stað þessa að bulla þessi heilu ósköp hérna.
Er einhver þarna úti með svör? HVER DRAP JFK og hvar er snjórinn?. Sá/sú sem finnur hann er vinsamlegast beðin að skila honum sem fyrst til skíðasvæða ÍTR.
Ég er orðin pirraður og þreyttur en þið?
allt sem við viljum er púður í dag, allt sem við viljum er púður í dag, allt sem við viljum er púður í dag, allt sem við viljum er púður í dag, allt sem við viljum er púður í dag, allt sem við viljum er púður í dag, allt sem við viljum er púður í dag.

Er ekki hægt að múta veðurklúbbnum á Dalvík eða eitthvað, einhver með hugmyndir?

púður
Custom56