Marco Antonio Barrera og Johnny Tapia munu mætast um heimsmeistaratitilinn í fjaðurvigt þann 11. nóvember næstkomandi. Barrera ber mikla virðingu fyrir Tapia: “Johnny verður erfiðari andstæðingur en Morales vegna þess að hann er sterkari, sneggri og slær mikið af höggum. Hann er einnig með afar stórt hjarta. Hann er eldri en ég, en hann er alltaf í frábæru formi fyrir alla bardagana sína, þannig að lykilatriðið fyrir mig er góður undirbúningur.”