Það er frekar erfitt að fá einhverjar góðar spólur með boxi hérna á Íslandi. Getið þið gefið einhver ráð um hvar er gott að nálgást þær? Væruð þið kannski til í að lána/leigja spólur á milli og hvað eigið þið þá? Ég á allavegana upptökur af Lewis/Rahman 1 og Holy/Ruiz 2, síðan á ég tvær sölumyndbandsspólur með Frank Bruno. Mig myndi mjög langa til að fá að sjá eitthvað með Klitsckounum ef einhver gæti leigt eða lánað mér.