Ég veit ekki hver sér um ritstjórn hérna en mér finnst allavega allt sem maður sendir inn annaðhvort koma of seint eða bara ekki. Þessi könnun (Mosley vs. Forrest 2) var send inn fyrir langa löngu og nú kemur hún upp EFTIR að bardaginn er búinn. Þetta er nú frekar rólegt áhugamál þannig að það ætti að vera auðvelt að halda utan um þetta en það virðist ekki vera svoleiðis. Það er varla að maður nennir að senda inn hluti ef ekkert gerist og það er kannski hluti af ástæðunni fyrir því að þetta er svona rólegt áhugamál.